Auglýsing

Ég er fluttur !!!

13. júní 2008 klukkan 17:35
Já ég ákvað að flytja mig um set, er mættur með nýtt blogg á arniarna.blog.is sem er moggabloggið.  Þið eruð að sjálfsögðu velkomin/n þangað.

Ég þakka fyrir mig á bloggar.is

kveðja
Árni Árna
Árni Árnason
1 athugasemd

Elskast í þyngdarleysi

09. júní 2008 klukkan 13:59
Það er með ólíkindum hvað fólki dettur í hug. Núna bíða pör í röðum eftir að komast út geim til að njóta þar ásta. Virgin Galactic ætlar að bjóða upp á geimferðir fyrir ferðamenn á næsta ári, greinir frá þessu. Sum pörin vilja að sjálfsögðu vera þau fyrstu til að elskast í þyngdarleysinu og önnur vilja taka herlegheitin upp á myndband.

Það er ekki amalegt að setjast niður með barnabörnunum og sýna þeim upptöku af afa og ömmu gera það í þyngdarleysinu ! Eða kannski verður þetta bara jafn algilt og hversdagslegt og það þykir núna að gera það í háloftunum. Það er greinilegt að aftursæti í rauðum bíl er bara púkó. 
 

Í fréttinni um þetta þyngdarleysis-kynlíf á visir.is kemur fram að það setur strik í reikninginn að vísindamenn telja að það sé einfaldlega ekki hægt að stunda kynlíf í þyngdarleysinu og bent er á að í geimfari Virgin muni þæyngdarleysið aðeins vara í 5 mínútur. 
 

Það er eins gott að vera þá búnin að hita vel upp áður ef ske kynni að hægt væri að framkalla fullnægingu í þyngdarleysinu á fimm mínútum – margir hafa nú lent í öðru eins
J 

gestabókin bíður ykkar 
Árni Árnason
8 athugasemdir

Skjálfti og ísbjörn

04. júní 2008 klukkan 10:39
Það er til skammar hvað það líður langt á milli pistla hjá mér hérna. Það er mikið vatn runnið til sjávar síðan ég kastaði inn pistli síðast. Jarðsjálftar með tilheyrandi skemmdum og fór ég ásamt nokkrum vinum í sumarbústað á skjálftasvæðinu sl. laugardag til að kanna skemmdir. Við gistum eina nótt í kyrrðinni, grilluðum og slöppuðum af. Við sváfum samt af okkur skjálfta á sunnudagsmorguninn sem var 3 að styrkleika. 

 
Þá fengum við íslendingar góðan gest sem var skotinn greyið. Ísbjörnin bjargaði fréttastofunum í kvöld og spjallþáttum líka. Þórunn tók að mínu mati bara hárrétta ákvörðun með að láta skjóta greyið, þótt það sé leiðilegt. Veðurskilyrðin voru leiðileg og buðu upp á að missa sjónar á honum. Mig minnir að um 6 km hafi verið á næsta bæ eða þéttbýli og ísbjörn hleypur á 60 km hraða. Það er nú ekki skemmtilegt að mæta svona skepnu við húsgaflinn hjá sér. Að vísu held ég að ég yrði bara bráðkvaddur á staðnum ! ehheheh 

 
Hvað um það þá óska ég Birnu Dögg frænku til hamingju með afmælið, en hún er 11 ára í dag. 

Minni á gestabókina
Árni Árnason
11 athugasemdir

Góð helgi

26. maí 2008 klukkan 00:31
Jæja það er löngu tímabært að kasta frá sér pistli hérna. Helgin var annasöm eins og venjulega. Fór í afmæli til Óla Geirs á NASA á föstudaginn. Það var fínt í afmælinu en fáir á NASA eftir að staðurinn opnaði fyrir almenning. Fólk hefur verið að spara sig fyrir laugarskvöldið. Á laugardeginum fór ég að fréttast eitthvað smá, en svo fór ég í Hawai –útskriftar – eurovision partý til Árna Þórs. Hann var að klára sveinsprófið í trésmíði.



Það var mjög gaman og þá var haldið niður í bæ þar sem allt var troðið, eigilega of margir.
 Ég var bara þræl stoltur af okkar fólki í eurovision, voru landi og þjóð til sóma, hefði viljað sjá fleiri stig, en austur evrópa hefur eignað sér keppnina og það verður æ erfiðara fyrir norðurlöndin að sigra, spurning með Finland þar sem það land tengist aðeins þessum austur evrópu þjóðum. En það skiptir ekki alltaf að sigra, þetta er góð landkynning og bara gaman að taka þátt. Núna er bara komin enn önnur vinnuvikan, lífið heldur áfram og maður er strax farinn að hlakka til næstu helgar ! ehhehe Ég verð samt að viðurkenna að ég bíð eftir 7, júní þá er Sálinn á NASA og ég ætla að mæta þar.
Árni Árnason
5 athugasemdir

Sjóferð og fótbolti

14. maí 2008 klukkan 02:31
Annar í hvítasunnu var sérstakur hjá mér. Ég vaknaði kl.5.30 að morgni og brunaði til Sandgerðis. Nýtt skip var væntanlegt í höfn, Sóley Sigurjóns GK 200 sem er nýjasta skipið í flota Nesfiskfjölskyldunnar. Baddi var búinn að hringja og biðja mig að koma og taka myndir og auðvitað er slíkt fréttnæmt þannig að ég dreif mig. 

Það hitti svo vel á að talað var við Jónas bróðir og hann beðið að fara með nokkra út á móti skipinu til að taka myndir. Þannig að ég hélt á haf út kl.6.00. Með í för var auðvitað Baddi, Bergur Þór, Bjössi, Emil Páll og einhver einn í viðbót sem ég veit ekki hver er. Baddi vildi helst hafa mig bara með held ég í von um að ég yrði sjóveikari en hann !
 



Við bræðurnir eftir sjóferðina.


Baddi er greinilega  gott efni í paparazzi ljósmyndara því hann kom sér fyrir upp á stýrishúsi og tók myndir eins og óður hundur. Svo þegar við komum í land þá spurði hann hvað ég hafi verið að gera inn í stýrishúsi allan tíman ??? ehehhe Skoðaðu Tíðindin á fimmtudaginn þá sérðu að ég smellti nú eitthvað af í ferðinni. Heheheh  

Eftir sjóferð í morgunsárið fór ég seinnipartinn á leik Njarðvíkur og Stjörnunnar til að fylgjast með Árna Þór. Hann hefur verið duglegur að koma og hlusta á mig í Gospelkórnum þannig að nú var komið að móralskum stuðningi frá mér til hans.



Árni Þór í átökum um boltan :) - Árni er þessi með skrítna svipinn í græna búningnum!
Árni Árnason
12 athugasemdir

Fjórhjóla-veiran er hættuleg

11. maí 2008 klukkan 23:54





Ég er búinn að búa við þau leiðindi að stór hluti vinahópsins talar ekki um neitt annað en fjórhjól, Maggi, Raggi, Bjarni, Rúnar, Jón Ingibjörn, Viggó og Aron og Brynjar eiga Crossara. Umræðan þegar hópurinn kemur saman er með þeim hætti að ég gæti alveg eins verið standur í tælenskum saumaklúbb ! Ég bara skil ekkert í þessu umræðuefni !! 
 

Kawasaki, Yamaha og eitthvað, kúplíng, hjálmar, prjóna, velta og hvað eina sem er eitthvað sem grípur ekki athygli mína. Þetta er svipað og þegar þeir byrja að ræða fótboltan, þá fer hugur minn á flug til fjarlægra landa þar sem mig dreymir gylltar stendur og afslöppun. 
 

Það er búið að ræða það mikið að það væri nú gaman að sjá mig, nördið á fjórhjóli. Fjöldi vina vilja gefa mikið fyrir þá sjón. Þegar skorað er á mig lít ég svo á að ég verði nú alla vega að íhuga áskorunina, nema þegar skorað er á mig að krúnuraka mig !
 Þannig að ég fór í dag og fékk jeppan hjá foreldrum mínum lánaðan og hélt út í Sandvík þar sem Jón og Rúnar voru með hjól sín.

Ég vakti mikla kátínu viðstaddra þegar ég stóð þarna og Jón var að útskýra fyrir mér hvernig kúplingin virkar og hvernig á að skipta um gír og gefa í og bremsa, svona grunninn í þessu. Ég flaug af stað eftir fjörunni og ég verð bara að viðurkenna að ég átti erfitt með að hætta. Þetta var miklu skemmtilegra en þegar ég vann til verðlauna í Gokart um árið. Þá var vakin sérstök athygli allra nærstadda að engin hafi ekið eins hægt í Gokart áður. 
 

Ég skemmti mér þræl vel og er alveg til í að prófa aftur. Ég er þó ekki kominn með veiruna á það stig að ég verði að eignast slíkan hlut. Ekki skemmdi heldur fyrir ferðinni í Sandvík að Árni Þór mætti á pick up –num sínum og festi sig í sandinum ! Árni Þór er með skap þessi elska og það braust út í miklum pirringi og þegar það gerist verður hann ekkert annað en fyndinn, ég reyni samt að fela það að mér sé skemmt þegar hann springur. 
 




Minni á gestabókina
 
Árni Árnason
13 athugasemdir

Borgarstjóri í vandræðum

09. maí 2008 klukkan 01:49
Það er kátt í höllinni (borginni) eina ferðina enn, Ólafur F. Borgarstjóri er í vandræðum að standa við gjörðir sínar. Karlgreyið hefur bara ekki það sem þarf til að standa við sitt, eflaust fínn karl, en kemur illa út í viðtölum. Sá hann í Kastljósi í kvöld og ég vorkenndi honum og enn og aftur er ég sannfærður um að Hanna Birna Kristjánsdóttir átti að verða borgarstjóri.  

Ég var búinn í huganum að svara Sigmari betur í huganum en það sem háttvirtur borgarstjóri ropaði út úr sér, það var aldrei í samhengi og engin glóra í því ! Ólafur réði Jakob Frímann stuðmann með meiru í þetta starf. Launin hans eru þau sömu og R-listinn borgaði verkefnastjóra tímabundið – Jakob er ráðinn í sérverkefni sem er ekki föst staða, ráðinn í eitt ár og þess vegna kannski ekkert að því að auglýsa ekki starfið.

Jakob er mikill hugsauður, sat með mér í nokkrum áföngum í Háskóla Íslands og ég viðurkenni það fúslega að stundum skildi ég ekki alveg hvert hann var að fara með ræðum sínum – en það er margt í hann varið.
 

En hvað  um það hvítasunnuhelgin er komin og margir að fara út úr bænum og ég vona að allir eigi góða helgi. Ég verð heimafyrir enda er Gospelkórinn að fara að syngja í messu á hvítasunnudagsmorgun.

Góða helgi
Árni Árnason
8 athugasemdir

Ofvirk forsetafrú

07. maí 2008 klukkan 11:16

Eins og margir vita eru dönsku krónprinshjónin í opinberri heimsókn á Íslandi í boði hr. Ólafs Ragnars Grímssonar forseta og hafa verið á ferðalagi um landið.

 

Í fréttum í gær var sýnt frá ferðum þeirra um Þingvelli. Doritt er auðvitað með í för, en á eitthvað erfitt með að hemja óþekktarpúkann í sjálfri sér. Hún fór að príla í klettasprungu eins og fimm ára þar til að krónprinsessan danska bað hana nú að hægja á sér, klettarnir væru blautir.

 

Þá brá íslenska forsetafrúin á það ráð að rífa myndavél af myndatökumanni stöðvar 2 og kallaði svo “Úlavúr, Úlavúr” – ég hef er ekki alveg að skilja framferði hennar. Það er í lagi að forsetafrúin sé lífleg og skemmtileg, en ég er farinn að hallast á það að hún þurfi á Ritalíni að halda – hún er pjúra ofvirk !

 

Hvernig yrði því tekið ef Laura Bush myndi hegða sér svona í opinberri heimsókn ? Maður hugsar líka til þess að hún Doritt var prakkari í skóla og var ekkert svakalega vinsæl og að mig minnir þá hætti hún námi. Þetta er sjarmerandi og falleg kona en mér finnst hún þurfa að passa upp á að halda reisn sinni.

Árni Árnason
6 athugasemdir

Jón eða séra Jón

04. maí 2008 klukkan 18:27

Jæja maður er alltaf að sjá það betur og betur að það er engine munur á Jóni og séra Jóni. Ég hef fyglst með fréttum frá Bandaríkjunum þar sem kaþólskir prestar eiga í vandræðum að standast litla stráka og bað páfinn bandarísku þjóðina afsökunar á hegðun presta, nýverið þegar hann var í opinberri heimsókn vestra.

 

Núna hefur sóknarpresturinn á Selfossi verið kærður fyrir kynferðislega áreitni og hefur verið leystur frá störfum tímabundið á meðan rannsókn stendur yfir. Ég veit nú ekki alveg hvað er í gangi þarna á Suðurlandi, menn eru greinilega að eitthvað að misskilja kærleikinn og í skjóli trúarinar er fólk misnotað. Guðmundur í Byrginu notaði Guðs orð og framkvæmdi í Guðs nafni og nú sóknarpresturinn.  En ég vil samt taka það fram að málið er í rannsókn og hann er að sjálfsögðu saklaus þar til sekt er sönnuð.

 

Ég verð samt að segja að það er vonbrigði að prestar geti ekki haldið aftur af sér og sínum brengluðu hvötum. Prestar eru þess eðlis að maður ber virðingu fyrir þeim og þeirra störfum. Þeir eru mikilvægir í hverju samfélagi og taka þátt í gleði og sorg okkar og þeim verðum við að geta treyst. 

 

Við vitum samt að prestarnir á öldum áður áttu flest lausaleiksbörn, voru drykkfelldir og kvensamir, ég vona að prestar séu ekki í auknu mæli að hverfa aftur til þeirra verka.

 

Minni á gestabókina

Árni Árnason
6 athugasemdir

Lúmskur áróður í bíómyndum

02. maí 2008 klukkan 03:47
Ég fór með nokkrum vinum í bíó á miðvikudaginn og fimmtudagskvöldið tókum við Árni Þór og Einar Páll spólu. Það sem mér þótti athyglisvert við þetta er að önnur myndin var ný grínmynd, Iron Man en hin alvarleg, Lions&Lamb.  

Í báðum myndunum er dulinn áróður sem ég held að það séu ekkert allir að átta sig á. Iron Man er skemmtileg grínmynd sem fjallar um frægan erfingja vopnaframleiðslufyrirtækis sem lendir í aðstæðum þar sem hann áttar sig á að vopnin hans sem er að þróa eru seld óvinum Bandaríkjanna líka og er ekki sáttur við það og grípur til sinna ráða.
 

Þótt þetta sé sett fram í spaugilegu tilliti þá er staðan samt svona. Vopnaframleiðendur eru án efa að selja óvinum USA vopn, þannig græða þeir og árangurinn í styrjöldum er að milljónir óbreyttra falla og engin vinnur nema vopnaframleiðendur. Það hlýtur að vakna spurningar um það hvernig háþróuð vestræn lönd ná ekki yfirhöndinni í vanþróaðri ríkjum. Ég veit að rússar eru að selja þeim, en ég er viss um að þau fá vopn líka frá USA. 

 
Í Lions&Lamb er fjallað um nýja hernaðaraðgerð sem öldungadeildarþingmaður er að kynna fyrir blaðamanni þar sem hann er að reyna að heilaþvo blaðamanninn um ágæti USA og yfirburði og nauðsyn þess að USA skipti sér að öllu í hlutverki sínu sem alheimslögga.Á meðan  öldungardeildarþingmaðurinn talaði um nýju áætlunina fékk maður að fylgjast með hermönnum fylgja henni eftir og þeir voru skotnir niður og áætlunin gekk ekki eftir frekar en annað sem bandaríkjamenn hafa reynt áður.

Vitum öll að USA hefur nú ekki verið að þvælast í árangri þegar kemur að hernaðarátökum, besta dæmið er að sjálfsögðu Víetnam þar sem þeir ætluðu að skjótast og leysa hnútinn, en annað koma á daginn, þetta er bara eitt dæmi um lélegan  hernaðarlegan árangur.
 

Handritshöfundar leyna á sér í lúmskum skotum á bandarísk stjórnvöld og ég er ánægður með það. Ég batt vonir við það þegar ráðist var inn í Írak til að fella Hussein þar sem hann var auðvitað geðsjúkur maður, en enn eina ferðina klúðruðu Bandaríkjamenn og Íraksdeilan hefur staðið lengur yfir en seinni heimstyrjöldin, spurning að bretar og þjóðverjar taki kannski að sér að vera alheimslögga í smá tíma og athuga hvort þeim farnist það betur en hamborgaraþjóðin sem telur sig vera best í heimi – ég hlakka til þegar Bush hrökklast frá völdum. 
 

Minni á gestabókina
Árni Árnason
3 athugasemdir